Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Spánverjar telja að þeir væru betur settir án evrunnar

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var á vegum Evrópusambandsins telja 54% Spánverja að þeir hefðu verið betur í stakk búnir að sigrast á þeim alvarlegu efnahagserfiðleikum sem geysa á Spáni með gamla sjálfstæða gjaldmiðilinn sinn, pesetann, að vopni en evruna. Talsmaður Evrópusambandsins sagði af því tilefni að þetta sýndi það eitt að spænskur almenningur hefði "ekki skilið kosti evrunnar."

Nánar...
 

Evrópusambandið mun reyna að blekkja Íslendinga

Daniel Hannan, þingmaður breska Íhaldsflokksins á Evrópusambandsþinginu, var staddur hér á landi á dögunum og flutti m.a. erindi á fjölmennum fundi sem Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna, hélt sl. föstudag 16. júlí. Þar færði hann rök fyrir því hvers vegna Íslendingar ættu ekki að ganga í Evrópusambandið og að hagsmunum Íslands væri best borgið utan sambandsins.

Nánar...
 

Ísafold mótmælir afskiptum Evrópusambandsins

Ísafold - félag ungs fólks gegn ESB-aðild lýsir yfir ónægju sinni með yfirlýsingu Stefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, þess efnis að ESB muni leggja fram fé til að framkvæma svokallaða kynningaráætlun sína. Þessu lýsti Füle yfir, eftir að hafa lýst yfir áhyggjum vegna ágreinings Íslendinga og lítils stuðnings almennings við umsóknina. Þessa fjárveitingu, samanlagt 4 m.a. er tæpast hægt að telja sem peningagjöf, þar sem íslensk stjórnvöld eru skuldbundin til að leggja fé á móti. Ef kynningarefni um Evrópusambandið á að hafa einhvern minnsta trúverðugleika ætti sambandið sjálft ekki að taka þátt í að semja slíkt efni. Er það skoðun Ísafoldar að Evrópusambandið hafi fullmikil afskipti af íslenskum innanríkismálum með áróðursstarfsemi sinni hér.

Stjórn Ísafoldar

 

Evrópusambandið fær stöðu á við ríki innan SÞ

Ríki Evrópusambandsins hafa samþykkt að farið verði fram á það við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að sambandið fái hliðstæða stöðu á samkomum þeirra og ríki. Þannig getir t.a.m. forseti Evrópusambandsins ávarpað þær með sama hætti og t.d. forseti Bandaríkjanna eða hver annar þjóðarleiðtogi. Eins og fyrirkomulagið er í dag hefur sambandið sömu stöðu gagnvart SÞ og t.a.m. Atlantshafsbandalagið (NATO) og Arababandalagið.

Nánar...
 

Tékkar lítt spenntir fyrir evrunni

Nýr seðlabankastjóri Tékklands, Miroslav Singer, segir að óvissan í kringum evrusvæðið sé svo mikil í kjölfar skuldavalda Grikklands að ekkert vit sé í að velta fyrir sér upptöku evrunnar. "Ég hef enga hugmynd um það hversu langan tíma það tekur að leysa úr vandamálum evrusvæðisins," sagði hann samkvæmt Wall Street Journal og bætti við að þar til að því kæmi væri einfaldlega of margt óljóst til þess að hann gæti sagt til um það hvort það yrði tékknesku efnahagslífi til framdráttar að taka upp evru.

Nánar...
 

Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Hlutlausar rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi hafa bent til þess að hugsanlegt sé að verðlag á matvörum gæti lækkað um 10-15% við inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru sem getur vart talist mikil lækkun. Ástæðan er m.a. sú að nú þegar eru flestar innfluttar vörur frá ríkjum sambandsins án tolla vegna EES-samningsins sem Ísland er aðili að. Hvort innganga í Evrópusambandið hins vegar raunverulega skilaði einhverju í þessum efnum kæmi aðeins í ljós eftir að inn í sambandið væri komið enda ljóst að ekkert yrði minnst á verðlagsmál í hugsanlegum samningi um inngöngu Íslands í það. Þess má annars geta að víðast hvar í þeim ríkjum Evrópusambandsins sem tekið hafa upp evru sem gjaldmiðil hefur verðlag hækkað en ekki lækkað. Í samræmi við það er evran t.a.m. uppnefnd "teuro" í Þýskalandi og Austurríki en þýska orðið "teuer" þýðir eitthvað sem er dýrt. Að lokum má geta þess að landbúnaðarvörur eru bara 5% af útgjöldum heimila og jafnvel 20% lækkun myndi því aðeins skila 1% lækkun útgjalda.