Tillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu fær falleinkunn

Af þeim fjörtíu umsögnum sem bárust vegna tillögunnar voru innan við fjórðungur sem studdu tillöguna eins og hún er lögð fram. Allar aðrar umsagnir lögðu annað hvort til breytingar á efninu eða færðu rök gegn tillögunni.

Umsögn Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA dómstólsins var mjög skýr. Hann segir spurninguna villandi, enda sé ekki hægt að halda áfram viðræðum sem slitið var fyrir meira en áratug síðan. Hann færði rök fyrir því að EES samstarfið gætti hagsmuna og sjálfstæðis Íslands betur en ef landið gengi í ESB. Hann bendir á er að ef Ísland hefði verið í ESB þegar Icesave deilan stóð, þá hefði Evrópudómstóllinn líklega komist að því að Ísland ætti að taka á sig tjónið, enda túlkar dómstóllinn lögin iðulega í þágu markmiða ESB sé svigrúm til þess. Að lokum rekur Baudenbacher ýmis vandamál sem steðja að ESB. Umsögn hans má lesa hér.

Allar umsagnir í málinu má nálgast hér á vef Alþingis.

Við mælum sérstaklega með eftirtöldum umsögnum:

Senda á: