Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór laugardaginn 29. ágúst.
Samkvæmt endanlegum niðurstöðum sögðu 52,8 prósent nei en 47,2 prósent já. Kjörsókn var um 82,5 prósent.
Ríkisstjórnin segist virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Heimssýn þakkar þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu baráttunni lið og ekki síst grasrótarhreyfingunum Áfram Ísland, Til Vinstri við ESB og unga fólkinu í XNei.
Til hamingju með sigurinn!
