Fimmti forseti Íslands var gestur íslenska hlaðvarpsins Chess after Dark. Í rúmlega þriggja tíma umræðu er farið yfir stöðu Íslands í heiminum í dag, Norðurslóðir, loftslagsmál, Evrópu og ESB, Kína, Indland, Bandaríkin, forsetaembættið og framtíð Íslands á tímum mikilla breytinga í heimsmálunum.
Eftirfarandir eru nokkur atriði sem fram komu í máli Ólafs Ragnars og Agnar Tómas Möller, hagfræðingur birti í facebook færslu sinni.
Þátturinn í heild er mjög fróðlegur og hægt að hlusta á hann bæði á Spotify og Youtube. Umræðan um ESB mál hefst eftir 50 mínútur.
„Ólafur tók saman helstu atriði sem hann telur vanta inn í Evrópuumræðuna – þ.e. staðreyndir sem þarf að ræða í stað hinnar hugmyndafræðilegu umræðu sem virðist ráðandi. Atriðin eru einkum þessi, auk seinasta (nr. 9) sem er viðbót frá mér um vextina (bannað að skjóta sendiboðann).
Munur á lengri tíma raunvöxtum á Íslandi (2,6%) og við Þýskaland (1,3%) og Frakkland (2,1%) er á bilinu 0,5% til 1,3%. Nafnvaxtamunurinn skýrist því að mestu af mun á verðbólguvæntingum, þ.e. hagstjórn auk stærðar og lánshæfis. Til að Ísland geti tekið upp evruna þurfa vextir að vera svipaðir og í Evrópusambandinu!
Ekkert nágrannalanda Íslands er í Evrópusambandinu: Grænland, Færeyjar, Noregur og Bretland.
Ekkert Norðurlanda er með evruna nema Finnland, sem hefur veikasta hagvöxtinn, hæsta atvinnuleysi og minnstu framleiðni síðastliðinn áratug.
Einstaka ríki Evrópusambandsins án evru, s.s. Pólland og Tékkland. Pólland eitt mest vaxandi hagkerfi EU og Tékkland með hæstu þjóðarframleiðslu á mann í A-Evrópu
Þrjú evrulaus ríki skarað framúr efnahagslega s.l. 10-15 ár: Noregur, Sviss og Ísland samkvæmt flestum mælikvörðum.
Hrunið: Tvö lönd urðu verst úti – Grikkland (innan) og Ísland (utan). Ekkert ríki reis jafnhratt og Ísland, Grikkland ekki fyrr en um 2020.
Evrópusamband ársins 2009 er ekki lengur til. Bretland eina samfellda lýðræðisríki 20. aldarinnar með ólíka stjórnsýsluhefð og “regluverks efasemdir” – í dag meira í anda hins þýska og franska skrifræðis.
Öryggis- og varnarmál léku ekkert hlutverk í umsókn árið 2009. Stefna Samfylkingarinnar og Viðreisnar sögulega án fyrirvara. Af hverju núna?
Varnarsamningurinn hefur ekkert breyst og ekkert bendir til þess, ólíkt þegar Georg Bush yngri dró herinn frá Keflavík. Grænland er óþægileg umræða en samningaviðræður í gangi sem skv. Ólafi ganga vel. Ef samningar nást, hvað hefur breyst?“ (Agnar Tómas Möller, facebook færsla)
